pís out...
12.12.2005 13:17:18 / Hildur

eitt próf eftir og þrír dagar í heimkomu...:)

Komið öll sæl og blessuð...já það er sko langt síðan síðast enda hef ég góða afsökun fyrir því þar sem að ég er búin að vera í prófum...ég var í næst síðasta prófinu í morgun...já því miður ekki því síðasta en það verður búið kl 12 á fimmtudaginn...og það ríkir mikið spenna og eftirvænting eftir þeim degi skal ég nú segja...ég er verri heldur en litlu krakkarnir ég er liggur við með dagatal á veggnum hérna í herberginu og tel niður hvað ég á marga daga eftir ég er svo hrikalega spennt að komast heim í afslöppun og jólastemmninguna...:)

Já talandi um prófin...þá er ég búin með 4 og á eitt eftir...ég á sálfræðisullið eftir á fimmtudaginn það er sko helling sem maður þarf að lesa fyrir það...ég er bara ekki frá því að ég þurfi að taka örlítið til í toppstykkinu til að koma þessu öllu fyrir...ég efast um að það sé gott fyrir toppstykkið að innbyrgða svona mikið af upplýsingum á svona stuttum tíma...:lol: segir þetta manni kannski það að það sé betra að læra vel yfir alla önnina heldur en að vera að stökkva út í djúpulaugina 2 dögum fyrir próf...ja maður spyr sig...:)

Fyrir ykkur sem ekki vissuð þá er hún Ranghildur búin að eignast litla ynidislega prinsessu og braggast þeim báðum mjög vel...hún er búin að setja inn nokkrar myndir af þessari elsku og mæli ég með að þið farið að skoða þær...þær eru neðst á síðunni minni hérna undir linknum ragnhildarbumba...;) ég er ekki frá því að maður sé bara kominn með smá spennutilfinningu í magan yfir þessu öllu saman þó að maður hefur því miður ekki haft mikinn tíma til að hugsa út í þetta útaf skólanum og prófunum...en eitt veit ég að það styttist óðum í stóradaginn og maður verður orðin mamma áður en að maður veit af...;)

Jæja ég veit ekki hvað ég get sagt ykkur meira en ég þarf að fara og gera undirbúningsvinnuna fyrir næsta próf...svo maður geti byrjað að læra í kvöld;) heyumst aftur þegar þetta allt er yfirstaðið og jólin fara að koma...;) bið að heilsa öllum og óska þeim sem búnir eru í prófum til lukku og njótið þess að vera til...;)

pís out...:P


» 71 hafa sagt sína skoðun

27.11.2005 22:48:23 / Hildur

Prófin að byrja og bumban að stækka

Hæ hæ..Ég veit að það er langt síðan síðast...en ég reyni að setja inn svona eina og eina grein þegar ég hef frá einhverju að segja...:) Nú eru prófin að byrja og ég er að fara að setjast yfir bækurnar...þetta er svona tímabil sem maður vildi óska að maður ætti fjarstíringu af lífinu og gæti spólað yfir tímann...en það er víst ekki hægt maður þarf að standa sig vel og koma stollt út úr skólanum...;)

Ég var á pólómóti í dag...mjög skemmtilegt mót ef þið viljið lesa nánar um mótið mæli ég með að þið farið inn á síðuna hjá okkur ofurdívunum sem er blog.central.is/ofurdivurnar og skoðið greinina sem er þar;)

En bumban mín stækkar bara og stækkar...og er bara ekkert nema gott með það...en bakið og rófubeinið er eitthvað búið að vera að angra mig undanfarna daga og vona ég að það sé ekkert alvarlegt...bara smá verkur...ég allavega krosslegg fingurnar upp á það...;)

Ég var að setja inn nýjan link...undir afþreying...mæli með að þið farið að skoða hann...

http://www.play-analogia.com/cgi-bin/index/u/

þetta er svona síða þar sem að þið getið sett inn myndir af ykkur sjálfum og séð hvaða frægu persónu þið líkist...mjög gaman allavega höfum við Anna mjög gaman af þessari síðu...:haha: Kannski þarf bara svona lítið til að skemmta okkur Önnu...:lol:

Jæja ég veit ekki hvað ég á að segja ykkur meira...ef þið munið einhverju sem að ég er ekki búin að segja frá en ykkur langar að vita...spyrjið mig þá bara í commentinu og ég svara um hæl...:) Farið vel með ykkur og njótið þess að vera til...

pís out...:P


» 71 hafa sagt sína skoðun

16.11.2005 00:24:31 / Hildur

Snilldar test...

 Stal þessum link af síðunni hennar Guðrúnar...þetta er snilldar test og mæli ég með að allir sem lít hérna við gefi sér tíma og taki testið...Ég tók það sjáf og þetta var útkomman hjá mér...Það er svo skilda að commenta á hvernig testið kom út...:haha:


When comes to drinking, you like it to go down smooth.

You really don't like the taste of alcohol - just its effect on you.

So, you're proud to get drunk on fruity, girly drinks.

Because once you're liquored up, the fun begins!

 

http://www.blogthings.com/alcoholquiz.html


» 64 hafa sagt sína skoðun

04.11.2005 18:18:54 / Hildur

Umm helgarfrí...:)

Já það er komin enn ein helgin...og það er svo ljúft þegar föstudagurinn rennur upp og maður veit að það eru tveir frídagar framundan...eða getur maður annars kallað þetta frídaga þegar það er farið að styttast svona í prófin...ja maður spyr sig...ég ætla allavega að reyna að hafa þetta bara bæði og...reyna að læra smá en slappa samt líka af ;)

Af mér og bumbubúanum er allt gott að frétta við erum bara enn við hestaheilsu og höfum ekkert yfir að kvarta...Vonumst bara til að við þurfum ekkert að vera að gera slíkt...:) Það fer víst senn að líða að prófum og maður ætti nú kannski að fara að líta í námsbækurnar...hvað er samt alltaf málið með kennara og að setja alltaf öll verkefni í gang í nóvember...þegar maður er komin í gírinn til að fara að glugga í glósur og svona til að undirbúa próflestur...humm já ég bara hreinlega skil þetta ekki :$

Ég hugsa að helgin verði bara róleg hjá mér...maður verður víst að hvílast vel...ég ætla að fara með moms í höfuðborgina á morgun og reyna að eyða kannski einhverjum peningum sem ég á ekki til...það er aldrei leiðilegt...:)

En jæja ég bara hef ekkert að segja akkúrat núna...þannig að ég ætla bara að láta þetta gott heita í bili og bíð ykkur öllum góðrar helgar...:)

Hildur out :)


» 70 hafa sagt sína skoðun

24.10.2005 10:35:41 / Hildur

Kvennafrídagurinn...

Sælt veri fólkið...helgin er liðin og ný skólavika að hefjast, ég sit hérna í íþróttasálfræði og hef það bara nokkuð gott...:)

Dagurinn í dag er merkilegur...jú viti menn við stöllur höfum rétt á því að hætt í störfum okkar kl 14:08 í dag...það eru víst einhverjir snillingar búnir að reikna það út að við séum búnar að vinna fyrir laununum okkar kl 14:08...:haha: já núna eru örugglega einhverir sem hrista hausinn og hugsa...ohh þessar kellingar þær eru alltaf eitthvað að röfla og reyna að vera betri en við karlarnir...ég lenti í smá rökræðum um helgina út af þessu atriði...Það var einn sem var að hneikslast á því hvað við getum röflað yfir öllu...ég kom með ágætis punkt á móti...það gerðist hérna í tíma hjá mér...við áttum að skila verkefni og fengum það svo til baka þegar kennarinn var búinn að fara yfir það...einkunnirnar voru að sjálfsögðu mismunandi en kennarinn gaf okkur þann kost að koma og ræða við hann og skila svo verkefninu aftur og reyna að betrumbæta það...einn hópur með þrem stúlkum í fóru og töluðu við kennarann og fengu skýringu á því hvað hefði mátt betur fara þar sem að þær fengu bara 7,5. Kennarinn útskýrði það og þær skiluðu aftur verkefninu og fengu fyrir þ að 9,5...snúum okkur þá að strákunum...einn hópur með þrem strákum í...þeir fengu 5,5 í verkefninu og fóru ekki að tala við kennarann og skiluðu ekki verkefninu aftur...Hvað er málið, afhverju ekki??? Þetta er bara munurinn á okkur...við stelpurnar viljum gera betur og standa okkur vel...og notum því munninn til að koma okkur áfram ;)

Leynivinavikan stendur enn yfir...þetta er æðisleg vika og þvílíkt humyndaflug sem sumir hafa...spennan er farin að magnast...á morgun fáum við að vita hver er með okkur og þeir sem við erum með fá að vita hver við erum...:) Það er ball á morgun sem þýðir það að við erum að fara að skemmta okkur...humm kemur það ykkur á óvart...:) ég ætla að dúlla við minn leynivin í dag og á morgun eins og ég mögulega get...hann á von á góðu...:)

Helginn var æðisleg...héldum matarboð heima hjá Sævari á laugardaginn...grilluðum læri og gerðum æðislegt meðlæti með...svo bauð ég upp á eftirrétt ís með jarðaberjum, bláberjum og heitri marssósu...ummm þetta var geðveikt...takk fyrir kvöldið krakkar...;)

Okkur bumbubúanum líður rosalega vel...við stækkum bara og liltla krílið er farið að hreyfa sig nokkuð mikið...ég er allavega farin að finna fyrir því að það er eitthvað þarna inni ;)

Jæja þarf að halda áfram að hlusta á kennarnn...ég læt heyra í mér síðar..:)

pís out...:P


» 76 hafa sagt sína skoðun

17.10.2005 23:40:03 / Hildur

Mars-búanum braggast vel...

Jæja þá hef ég ákveðið að skrifa mína fyrstu grein um litla einstaklinginn sem vex innra með mér. Við Sævar fórum í 20 vikna sónarinn í dag og það leit allt bara rosalega vel út...fengum að heyra hjartslátt...það var æðislegt...:) svo fórum við í sónarinn og fengum að sjá litla krílið okkar...það snéri nú samt allan tíman baki í okkur, þannig að það sem við sáum mest var bara hryggurinn og rassinn...það var samt bara krúttlegt...Krílið stækkar ört og allt í góðu standi þar inni...enda svo gott að kúra í maganum á mömmu sinni...;) Við fengum að vita skráningardag...og er ég skráð 9. mars...já Ólöf Birna á afmælisdaginn þinn...þú gætir jafnvel fengið lítinn frænda eða frænku í afmælisgjöf eins og þú varst búin að pannta...:haha: En eins og þið lesið hér að ofan þá líður okkur öllum voðalega vel og höfum ekki neitt til að kvarta yfir...allavega ekki ennþá...:S

Mánudagurinn er á enda og það þýðir að helgin var að klárast...ég gerði voðalega lítið um helgina...var bara heima á föstudaginn og fór svo í bíó á laugardaginn...ef fólk er á leiðinni í kvikmyndahús landsins þá mæli ég með að þið farið að sjá Flightplan hún er mjög góð...eða allavega fannst mér það og þeim sem voru með mér í bíó...:)

Núna ligg ég bara upp í rúmi og er að hugsa um að fara að skríða undir sæng og fara að kúra mér...var að koma út nuddi í kvöld...frekar svona gott vont...manni á eftir að líða vel eftir á þó að það hafi verið vont á meðan á því stóð...:) En ég læt heyra í mér fljótlega aftur þangað til farið vel með ykkur og gangið hægt um gleðinnar dyr...:P

pís out...:P


» 77 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 18:46:50 / Hildur

Laugardagur til lukku...

Hæhæ...já það er laugardagur og er þessi dagur oft talinn dagur lukkunnar...það sem af er deginum hefur engin lukka komið yfir mig...:$ En spurning dagurinn er nú ekki enn búinn...spurning hvernig kvöldið verður ;)
 
Karla og konuferðin er búin og heppnuðust báðar ferðirnar rosalega vel...stákarnir stóðu sig vel í heimkomunni þetta árið og ég held bara að við stelpurnar höfum náð að halda bara nokkuð vel í þá þetta árið...allavega fannst mér heimkoman okkar líka bara nokkuð góðu...:) Það ver nú ekki mikið svona krassandi sem gerðist þessi kvöld það voru allir nú nokkuð stilltir og bara skólanum til mikillar fyrirmyndar...:haha:
Helgin hefur nú farið frekar rólega af stað...kom heim í gær og kíkti í heimsókn í nýju íbúðina hans Stef mjög fín og góð ;) svo var bara farið heim að sofa...ég vaknaði bara snemma í dag og byrjaði að læra já ótrúlegt en samt satt...:) svo kíkti ég á Sirrý og Svölu Rún...vá hvað hún er orðin stór...maður sá hana síðast bara pínuponsu litla og maður þorði varla að halda á henni...núna er hún orðin ekkert smá stór og algjör bolti...ekkert smá sæt...ohh finns ykkur ég nokkuð vera orðin spennt???....:lol: Kvöldið er óráðið og aldrei að vita hvað maður tekur sér fyrir hendur...er einhver með góða uppskrift af góðu kvöldi???

En já ég vil enda þennan pistil á því að benda ykkur á að skoða nýja heimasíðu sem við dívurnar í skólanum erum búnar að setja upp og verður margt spennandi og krassandi þar á bær næstu daga og mánuði...hvet alla til að fara og skoða hana hún er undir Laugarvatnsfólk....og svo er það bara Dívurnar...:)

Jæja orðið gott í bili...pís out...:P

» 54 hafa sagt sína skoðun

05.10.2005 00:16:35 / Hildur

Loksins loksins...

Jæja já...já ég get ekki sagt að ég sé fyrirmyndar bloggari...nei ég hef verið haldin einhverri ógulegri veiki sem kallast bloggleti...já þetta er ný veira sem er farin að setjast á mannskapinn og læknar kunna engin ráð við...en ég held að ég sé öll að koma til...eða það vona ég allavega :S

Það er örugglega mikið búið að ganga á hjá mér síðan ég bloggaði síðast..enda frekar langt síðan...en ég ætla nú ekki að fara að telja allt það upp heldur ætla ég bara að segja ykkur frá svona því helsta sem hefur verið hjá mér og mínum síðustu daga...;) ég fór í ágætis partý á laugardaginn síðasta...en það var partý hjá körfuboltastrákunum í Keflavík...já við Sævar mættum sem boðflennur enda er Sæbbinn ekkert að spila með þeim í vetur...:) en þetta var fínasta partý...það var svona bíómyndaþema...það voru allavegana fígúrur þarna...ég kom sem ófríska konan í Hárinu...man nú ekki alveg hvað hún kallaði sig í þeirri frægu mynd...og Sævar og Gunni mættu sem Stuck on you...já ég saumaði saman jakkafatajakka og stuttermabol...það var frekar findið...:lol: en ég fór snemma heim enda útivistartíminn minn farinn að styttast all verulega síðustu daga eða mánuði...já maður er eitthvað svo þreyttur þessa dagana...:) En annars var þetta bara fínasta helgi...

Í dag kom nuddskólinn í heimsókn og voru þau að gera góða hluti...við fengum geggjað nudd og er ég ekki frá því að stúlkan sem nuddaði mig hafi bara staðið sig nokkuð vel...eða þangað til að annað kemur í ljós...hún sagði reyndar að ég gæti orðið frekar aum á morgun...það verður þá bara að koma í ljós...:S En á morgun er kvennaferðin góða...og er komin mikil spenna í mannskapinn...ég held að þetta ætli að stefna í góða og allsvakalega skemmtilega ferð þetta árið...en já ég ætla að segja ykkur betur frá henni á fimmtudaginn...læt ykkur vita ef að eitthvað krassandi gerist...;)

Ég var að koma úr innflutingspartý sem snarlega breyttist í lokahóf...en það var partý upp á Dalbraut. Guðrún bauð upp á frábæra bollur var mér sagt og strákarnir buðu bjórinn...ég hélt mér nú bara í kókinu...það er alveg nóg fyrir mig...;) En jæja ég er orðin frekar þreytt og ætla að fara að halla mér á hina hliðina...ég læt heyra í mér á fimmtudaginn eftir ferðina ógurlegu...:haha:

pís out...:P


» 75 hafa sagt sína skoðun

20.09.2005 01:39:49 / Hildur

Ég er-ann...

Já ég hef víst verið klukkuð...þið sem vitið ekki hvað það er, þá er það nýr og skemmtilegur leikur sem að hefur verið fundinn upp í blog.heiminum...hann fer þannig fram að sá sem er klukkaður verður að segja frá 5 persónulegum atriðum sem fáir vita af...já þetta er vandaverk og þarf maður að velja rétt úr...því það eru nú fleiri en 5 atriði sem maður hefur að leyna...:lol:

nr. 1: Ég gat aldrei farið í sveit, gist hjá vinum eða farið í ferðarlög með öðrum en mömmu minni þegar ég var yngri því að ég var svo mikil mömmu stelpa...:)

nr. 2: Þegar ég var yngri sá ég svartklæddann mann í herberginu mínu á hverri nóttu, en svo fór ég til sérfræðings sem gerði einhverja hugleiðslu við mig og ég hef nú ekki séð vin minn síðan...:S

nr. 3: Ég tapaði einusinni í sleik-keppni af því að stákurinn sem ég var í tunguslag við beit í vörina á mér...:lol:

nr. 4: Ég fór eitt sinn inn í bakaraofn og það var lokað og keikt á honum...geri aðrir betur...já ég veit að Davíð fór líka inn í hann...hann er líka dvergur...:haha:

nr.5: Ég er að verða mamma í mars...;)

Jæja ég er þá búin að segja ykkur frá 5 atriðum sem að fáir vissu um...getur verið að einhverjir hafi vitað af einhverjum atriðum...en ég ætla ekki að fara út í viðkvæmari hluti það gæti sært blygðunarkend einhverra...:haha:

Þá er það stóra spurningin...hvern klukka ég...humm það er gott að hafa völdinn...:) ég ætla að klukka hana Ragnhildi elskulegu vinkonu mína, elskuna mína hann Sævar, Gunnar Axel bekkjarbróður minn og Dívudrottninguna Ernu...

Pís out...:P

...Það þýðir ekkert að reyna að ljúga sig út úr þessum eltingarleik...hérna verða menn að vera heiðarlegir og deila þessum atriðum með okkur hinum...annars fer fyrir ykkur eins og gosa...:lol:


» 73 hafa sagt sína skoðun

19.09.2005 00:42:24 / Hildur

Epcot...

Já dagurinn í dag var hreint magnaður...við ákváðum að skella okkur í einn af Disney görðunum...og varð Epcot fyrir valinu...guð sé lof fyrir það...Því þetta breytist fljótt úr því að vera skemmtiferð í það að vera frekar slöpp og erfið ferð...við komum inn í garðinn og allt var í góðu lagi...já Ellen ég komst allavega inn fyrir hliðið...:) En við byrjuðum á því að fara í eitthverja svona skoðunarferð frá upphafi jarðar og alveg í gegn fram í framtíðina...það var rosalega gaman að sjá það...en svo þegar við komum út ákváðum við að skella okkur í tæki sem var eins og að fara með geimskipi út í geim...við gengum inn og sáum að það væri um 20 mín bið...en við æluðum nú að láta okkur hafa það...þegar röðin var komin að okkur þá var okkur vísað veginn inn í svona geimklefa og útskýrt fyrir okkur hvernig við ættum að hafa okkur...ég pikka í Nínu og spyr hana hvort að við værum á hreyfingu en hún sagði að svo væri ekki...mér fannst það nú samt og var farin að vagga all svakalega...svo fór sjónin eitthvað að tapa sér og ég þurfti að setjast niður...mamma og Nína spurðu hvort að ég vildi fara út en ég sagði alltaf nei ég ætla í þetta tæki...ég ætla...en svo þegar var búið að halda yfir okkur smá fyrirlestur um geimferðina var opnuð fyrir okkur önnur hurð sem við áttum að fara inn um...þá ætlaði ég að stíga mín fyrstu skref inn en þá hreinlega gáfu fæturnar sig...og ég var að falla í yfirlið...sem betur fer komst ég út og settist á bekk áður en að ég varð alveg rænulaus...en mikið roslega var þetta óþægileg tilfinning...svo fórum við út og ég fékk eitthvað smá að borða en hafi ekki mikla list...en svo náði ég nú að hressast í smá tíma þar til að yfirliðstilfinningin kom aftur þá setist ég á næsta bekk og Nína fór og keypti handa mér svona úðabrúsa með viftu...þvílík uppfinning...ég hefði ekki komist lífs af án þessa apparats...:) en svo bara varð ég nokkuð hress og náði nú að ganga í gegnum garðin en ég lét tæknin nú alveg eiga sig...svo þegar við vorum komnar nánast á endann...ákváðum við að fara í siglingu...þetta var svona náttúrufræði sýning...mjög skemmtileg...en þegar ég var að bíða í röðinni og var alveg að koma að bátnum...kom þessi bansetta tilfinning aftur...og ég þurfti að setjast niður...ég sagði Nínu og mömmu að fara bara en þær tóku það nú ekki í mál...þannig að Nína sagði komum henni bara í bátinn henni á eftir að líða betur þar...ég náði nú að dröslast í bátinn...og jú mér leið ögn betur...en svo þegar siglingin var búin fórum við bara aftur út...og með þessari bátsferð settum við punktinn yfir i-ið á  þessa skemmtilegu og eftirminnilegu ferð í Disneygarðinn Epcot...:lol: mikið roslega er gaman að hugsa um þetta eftir á...og við erum mikið búnar að hlæga af þessu atviki og þegar ég varð kríthvít í framan...:haha:

Jæja við erum nú komnar heim og það er verið að dúllast í mér ég er núna í fótabaði...og er að fara að fá fótanudd, þannig að ég ætla að láta þetta duga í bili og leyfa ykkur að ímynda ykkur hvernig dagurinn var hjá mér í Orlando...:)

pís out...:P

# þessi mynd er af geimtækinu sem ég ætlaði að vera rosalega brött að fara í...:lol:


» 76 hafa sagt sína skoðun

16.09.2005 18:50:58 / Hildur

Sól hiti og mikið verlsað...

Jæja gott fólk það er allt gott að frétta af mér ég er núna stödd í Orlando og hef það æðislega gott...búin að versla slatta en það er nú samt eitthvað enn eftir :) ég vildi bara skella á ykkur kveðju og ég ætla nú ekki að eyða meiri tíma hérna inni ætla að skella mér út í sólbað...:)

kv. frá Orlando...:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2005 15:51:38 / Hildur

Ég fer í fríið...ég fer í fríið...ég fer í fríið...:)

Sællt veri fólkið...það er markt skemmtilegt búið að ganga á í mínu lífi undanfarna daga...það var nánast enginn skóli í síðustu viku eða maður var að mæta í fyrstu tímana um 13 og svo var maður búinn um 15 þetta er bara ljúft...en mikið rosalega verður maður þreyttur á því að gera ekki neitt :$ En það hefur nú eitthvað lítið farið fyrir hreyfingu af minni hálfu síðurstu daga...ég er búin að vera frekar löt, en maður vinnur þetta upp þegar maður fer að þramma í búðunum næstu 9 daga...:) En þið sem ekki vitið þá er ég á leiðinni til USA nánar tilltekið Orlando á morgun...ég legg land undir fót um 17 leitið og sný ekki aftur á klakan fyrr en morguninn 22 sept...:) en ég skal hugsa vel til ykkar og kannski kaupa einn sleikibrjóstsykur handa ykkur því meira kemst ekki í töskuna því að ég ætla að fylla hana af einhverju góðgæti fyrir mig og mína...:lol:

En ég kom heim af vatninu í gær...keyrði heim og var komin heim um 04:30 frekar þreytt þegar ég vaknaði og fór að þjálfa kl 10:30...en það var hörku stuð á nemendadeginum í skólanum...og var fólkið hresst að vanda...alltaf jafn gaman að fá fólkið sem útskrifaðirst síðast í heimsókn...þið verðið að vera dugelg við að koma uppeftir í vetur ;)

Jæja ég þarf nú að fara að gera mig reddí í ferðina miklu...ég læt kannski heyra stuttlega frá mér á næstu 9 dögum...en annars segi ég bara hafið það gott á klakanum og við sjáumst þegar ég kem aftur heim...:)

pís out :P

» 5 hafa sagt sína skoðun

07.09.2005 14:38:19 / Hildur

Dívudagur...dívukvöld & dívutal...

Vikan er hálfnuð og maður er bara nokkuð brattur...það var dívudagur í gær...við mættum í skólann kl 13 og vorum til 15...strax eftir tíma skelltum við dívurnar okkur í pottinn og nutum þess að láta heita vatnið leika um okkur...við sátum þar í c.a. 2 tíma...þá var næst á dagskrá að fara að sparsla í hrukkurnar og greiða flókann úr hárinu...:lol: því að næst á dagskrá var matur...þegar allar voru reddí var raðað í bíla og lagt af stað...Anna fór á kagganum sínum og var ég hennar vinstri hönd alla leið...við stoppuðum á Selfossi til að pikka eina dívuna upp eða Huldu...svo varð á veigi okkar fullur bíll af Selfoss hnökkum...þó að Selfossdívurnar hafi nú ekki alveg viljað staðfesta það...en þessir drengir þurftu að skoða okkur örlítið nánar...og keyrðu þeir glannalega fyrir aftan okkur, framan okkur og meira að segja við hliðina á okkur...en við dívurnar létum þetta nú ekki á okkur fá enda þræl vanar að karlpeningurinn dansi svona í kringum okkur... :lol: En þeir gáfust nú upp fyrr en á Óseyrarbrúnni...þá vorum við komnar að Hafinu Bláa...þar sem að við ætluðum að borða...við komum okkur vel fyrir með útsýni yfir sjóinn allan hringinn...það var ýmislegt pantað...einhverjar fengu sér humarsúpu, enn aðrar 300g. humar...þar á meðal ég...svo fékk Hulda sér grillað lamb og Sara fékk sér grillaða kjúllabringu...Flestar voru sáttar með matinn...nema kannski Erna sem hélt að kokkinum væri eitthvað illa við sig og hefi verið að byrla fyrir henni eitri...því það var eitthvað undarlegt svartlitað í súpunni sem líktist flugu en allt kom fyrir ekki og var þetta bara krydd...:lol: Þegar allar voru orðnar saddar og sælar lá leiðin á Kaffi-Krús á Selfossi...þar fengu nokkrar dívur sér kaffi og köku...en enn aðrar voru búnar að ákveða að fá sér ís á heimleiðinni...eftir smá blaður og hlátur á Kaffi-krús fórum við að leggja í hann heim á leið...við stoppuðum og fengum okkur ís á olís....já ég veit að þetta rímar....og þar átti eiginlega Vigga senuna...en þetta var samt svona “had to be there” moment...:lol: svo brunuðum við aftur upp á vatn og vorum dívulega saddar og sáttar með daginn og kvöldið...

Skólinn hófst svo kl 10 í morgun og var til 12 fyrir þá sem eru slappir í reikningi eða vita ekki hvað tíminn í skólanum er lengi þá eru þetta tveir tíma...Þetta var Heilsufræði hjá Bjössa og var þetta alveg feyki nóg fyrir minn haus...úff... En svo var það fótboltaleikur í hádeginu...Strákarnir í okkar bekk skoruðu á strákana á 1 ári...og unnu Víkingarnir okkar sannfærandi sigur 5-1...STÁKAR ÞIÐ ERUÐ BEKKNUM TIL SÓMA...TIL LUKKU MEÐ LEIKINN !!!! ;)

Núna liggjum við eins og skötur upp í rúmi ég og Anna og erum að glápa á imbann...ekkert almennilegt ákveðið fyrir kvöldið en Vatnið er fullt af uppákomum...Ég læt heyra í mér fljótlega...allaveg áður en að ég yfirgef landið...en það eru bara 5 dagar í að maður verði að versla og sóla sig í ORLANDO...:)

Pís out...:P


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.09.2005 12:37:02 / Hildur

Nú verður alltaf bjart í Keflavík...Ljósanóttin liðin...

Helgin er liðin og ljósanóttin yfirstaðin...þetta var ágætis helgi...ég var reyndar bara róleg og var komin snemma heim í háttinn...:) En flugeldasýningin var meiriháttar stóð yfir í umþaðbil 20 mín. :) En svo var lítið annað gert um helgina...Í gær fór ég á fyrsta Breiðabliks leikinn...og var þetta bara hin ágætasta skemmtun...og tala nú ekki um skemmtunina sem hann Sævar framkvæmdi fyrir áhorfendur og aðra sem sem á leiknum voru...:lol: það er reyndar erfitt að segja frá þessu atviki þetta var svona had to be there moment...

Busakvöldið var síðasta fimmtudag...og gekk það bara ágætlega. Reyndar komu upp smávægilegir erfiðleikar sem við Eyfi leystum í sameiningu..."Allt í Drasli með Hildi & Eyfa"...:lol:

Ég hef ekki mikið annað að segja en það að ég er að fara til USA á mánudaginn næsta...og hlakka pínu lítið til...:)heheh

pís out :P


» 3 hafa sagt sína skoðun

31.08.2005 23:22:26 / Hildur

hið ljúf Laugarvatnslíf...

Jæja þá er maður búin að koma sér rosalega vel fyrir í herbergi nr 22...ohh þetta er æði...við Anna erum búnar að gera ótrúlega kósý inni hjá okkur...ykkur er velkomið að koma í heimsókn og kíkja á okkur...það er alltaf opið hjá okkur...og meira að segja svefnsófi ef einhverjum vantar að lúlla...;) En já eins og þið hafið lesið þá er ég komin aftur á vatnið góða og æðislegt að hitta alla aftur...:haha: 1 árs nemendurnir koma bara ágætlega fyrir sjónir...en maður á eftir að sjá hvort að þau standist inntökuprófið sem fer fram á morgun...Það er busakvöld á morgun og það er hægt að segja að við ætlum aðeins að tuska þau til...ekki veitir af þar sem að þau hafa sloppið tiltörulega vel enn sem komið er...:S En ég læt ykkur betur vita hvernig þetta fer allt eftir morgundaginn...

Helgin verður spennandi þar sem að ljósanóttin er heima í KefCity á Laugardaginn...ég mæli með að fólk komi og kíki í bæinn minn...það er obboðslega gaman á þessari nótt...;)

En núna þarf ég að fara að sinna skyldum mínum hérna við erum aðeins að dífast hérna stelpurnar hérna í herbergi 18...in da diva room....:)

pís out...:P


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12